Búist við um 10.000 áhorfendum
A landslið karla mætir liði Bandaríkjanna í vináttulandsleik í Carson, Los Angeles á sunnudag. Á sjöunda þúsund miða hafa selst á leikinn, en leikvangurinn sem leikið verður á, StubHub Center, heimavöllur LA Galaxy sem leikur í MLS-deildinni, tekur 27.000 manns í sæti. Fulltrúar Knattspyrnusambands Bandaríkjanna telja að um 10 þúsund manns verði á leiknum, en slá þó þann varnagla að spáð er mikilli rigningu á leikdegi, sem mun að öllum líkindum hafa mikil áhrif á aðsóknina.
Leiktímanum hefur verið breytt að beiðni bandaríska sjónvarpsrétthafans, ESPN, og hefst leikurinn nákvæmlega kl. 21:08 að íslenskum tíma (beint á RÚV2), en áður var leikurinn settur á kl. 20:45.