FIFA kynnir nýtt fræðsluverkefni fyrir lækna og sjúkraþjálfara
FIFA kynnti nýverið fræðsluverkefnið FIFA Diploma in Football Medicine sem miðar að því að styðja við lækna og sjúkraþjálfara í þeirra starfi, sér í lagi við greiningu og meðhöndlun meiðsla knattspyrnumanna. Um er að ræða námskeið sem tekið er í gegnum vef FIFA.
Námskeiðinu er skipt upp í nokkur fög og er efni hvers þeirra unnið af þekktum sérfræðingum á hverju sviði.