Unglingadómaranámskeið 21. janúar
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fylki og hefst kl. 17:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
Námskeiðið verður verður haldið hjá Fylki í Fylkisheimilinu fimmtudaginn 21. janúar kl. 17:00.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is