Árlegur vinnufundur um leyfismál
Árlegur vinnufundur með endurskoðendum og leyfisfulltrúum félaga var haldinn í höfuðstöðvum KSÍ á föstudag og var hann að venju vel sóttur af fulltrúum félaga í efstu tveimur deildum karla, sem eru þær deildir sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ.
Lúðvík Georgsson, formaður leyfisráðs, fór yfir helstu breytingar á leyfisreglugerðinni milli ára. Björn Ingi Victorsson og Birna María Sigurðardóttir frá Deloitte fóru síðan ítarlega yfir fjárhagslega þætti, breytingar og áhersluatriði og fór jafnframt yfir ýmis hagnýt atriði.
Glærukynningar