Kosningar í stjórn á 70. ársþingi KSÍ
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 30. janúar næstkomandi. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
a. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
b. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
c. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
d. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
e. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Kosning formanns
Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 69. ársþingi KSÍ í febrúar 2015. Tveggja ára kjörtímabili Geirs sem formanns lýkur á 71. ársþingi KSÍ árið 2017.
Kosning í aðalstjórn
· Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 70. ársþingi KSÍ 13. febrúar nk.:
Í aðalstjórn
Gísli Gíslason, ritari Akranesi
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
Rúnar V. Arnarson Reykjanesbæ
Gísli Gíslason, Jóhannes Ólafsson, Ragnhildur Skúladóttir og Rúnar V. Arnarson gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2017):
Guðrún I. Sívertsen, varaformaður Reykjavík
Gylfi Þór Orrason, gjaldkeri Reykjavík
Róbert Agnarsson Reykjavík
Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
· Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 70. ársþingi KSÍ 13. febrúar nk.:
Aðalfulltrúar landsfjórðunga
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Valdemar Einarsson Austurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Allir ofangreindir fulltrúar gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn sem aðalfulltrúar landsfjórðunga.
Kosning varamanna í aðalstjórn
· Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 70. ársþingi KSÍ 13. febrúar nk.:
Varamenn í aðalstjórn
Ingvar Guðjónsson Grindavík
Jóhann Torfason Ísafirði
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Ingvar Guðjónsson og Jóhann Torfason kost á sér til áframhaldandi setu sem varamenn í aðalstjórn.
Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.