Aron Einar, Gylfi Þór og Sara Björk meðal tilefndra sem íþróttamaður ársins 2015
Samtök íþróttafréttamanna hafa tilnefnt 10 íþróttamenn í kjörinu um íþróttamann ársins 2015. Knattspyrnan á fulltrúa á listanum en meðal tilnefndra eru Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir.
Þá er karlalandsliðið tilnefnt sem lið ársins og Heimir Hallgrímsson sem þjálfari ársins.
Sara Björk Gunnarsdóttir varð á árinu meistari með sænska liðinu Rosengård en Sara er fyrirliði liðsins. Liðið er einnig komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Sara lék alla leiki Íslands í undankeppni EM en íslenska liðið er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, var einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í Frakklandi. Þá var hann valinn í úrvalslið undankeppninnar. Gylfi var útnefndur íþróttamaður ársins árið 2013.
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, lék stórt hlutverk með íslenska landsliðinu í undankeppni EM en Aron er fyrirliði landsliðsins.
Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem útnefna íþróttamann ársins í sextugasta skipti í ár en kjörinu verður lýst í Silfurbergi í Hörpu næsta miðvikudagskvöld, 30. desember. Atkvæði í kjörinu hafa verið talin og allir 26 félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna nýttu atkvæðisrétt sinn. Þeir kjósa ekki aðeins íþróttamann ársins, heldur einnig lið ársins og þjálfara ársins.
Jón Arnór Stefánsson körfuknattleiksmaður er handhafi titilsins en hann var kjörinn íþróttamaður ársins 2014.
Íþróttamaður ársins:
Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir
Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar
Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna
Lið ársins:
A-landslið karla í knattspyrnu
A-landslið karla í körfuknattleik
Kvennalið Stjörnunnar í hópfimleikum
Þjálfari ársins:
Alfreð Gíslason
Heimir Hallgrímsson
Þórir Hergeirsson