Miðapantanir á úrslitakeppni EM einungis á miðasöluvef UEFA
Eins og mörgum er kunnugt þá er búið að opna fyrir miðapantanir á leiki úrslitakeppni EM í Frakklandi 2016, þ.m.t. á leiki Íslands í keppninni. Allar upplýsingar um ferlið er hægt að finna á miðasöluvef UEFA þar sem einnig er sótt um miða.
Við biðjum fólk um að fara varlega þegar farið er að panta miða á netinu og ganga vel úr skugga um að aðeins sé sótt um í gegnum miðasöluvef UEFA. Eins og oft er í kringum stóra viðburði, þá eru heimasíður sem eru að bjóða til sölu miða á leiki úrslitakeppni EM í Frakklandi.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, leggur mikla áherslu á að koma þeim upplýsingum til stuðningsmanna þjóðanna að einungis er hægt að panta miða í gegnum UEFA, aðrir aðilar hafi ekki leyfi til að bjóða til sölu miða á keppnina.