Troðfullur þjóðarleikvangur Pólverja
Pólland og Ísland mætast í vináttuleik A landsliða karla á Narodowy-leikvanginum í Varsjá á föstudag. Leikurinn hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á RÚV.
Uppselt er á leikinn, sem þýðir að ríflega 58.000 manns munu fylla þennan glæsilega þjóðarleikvang pólska landsliðsins, sem var byggður fyrir úrslitakeppni EM 2012, en sú keppni fór fram í Póllandi og Úkraínu.
Pólverjar vænta mikils af landsliði sínu, sem tryggði sæti sitt í úrslitakeppni EM 2016 í Frakklandi með því að hafna í öðru sæti síns riðils á eftir Þjóðverjum.