U19 karla - Ísland leikur við Danmörku í dag - Byrjunarliðið
U19 ára landslið karla leikur í dag fyrsta leik sinn í undankeppni EM en leikið er á Möltu.
Ísland er með Danmörku, Möltu og Ísrael í riðli en tvö efstu liðin úr hverjum riðli ásamt liðinu með besta árangurinn í þriðja sæti fara í milliriðil. Ísland leikur við Danmörku í fyrsta leiknum í dag en leikurinn hefst klukkan 13:00 og er hægt að fylgjast með gangi mála á vef UEFA.
Byrjunarlið Íslands:
Markmaður:
Sindri Kristinn Ólafsson
Aðrir leikmenn:
Alfons Samsted
Sindri Scheving
Daði Bærings Halldórsson
Birkir Valur Jónsson
Viktor Karl Einarsson
Óskar Jónsson
Albert Guðmundsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Óttar Magnús Karlsson
Hafþór Pétursson
Smelltu hérna til að sjá textalýsingu frá leiknum á vef UEFA.