Ísland niður um 8 sæti á heimslista FIFA
Karlalandsliðið féll um 8 sæti á heimslista FIFA sem birtur var í morgun. Tap gegn Tyrkjum og jafntefli gegn Lettum gera þetta að verkum en þess má geta að Tyrkir fóru upp um 19 sæti á listanum.
Ísland er ennþá efst af Norðurlandaþjóðunum en Danir eru í 35. sæti, Svíar í 45., Norðmenn í 46. sæti, Finnar í 56. og Færeyingar í 89. sæti af þeim 209 þjóðum sem eru á listanum.
Belgía tyllti sér á toppinn á listanum í fyrsta skipti en Þýskaland kemur svo næst og þá Argentína.