U17 landslið kvenna í Svartfjallalandi
U17 landslið kvenna hefur leik í undankeppni EM 2016 í vikunni, í riðli sem er leikinn í Svartfjallalandi. Auk Íslendinga og heimastúlkna eru Færeyingar og Finnar í riðlinum. Leikdagar eru 22., 24. og 27. október og eru fyrstu mótherjarnir Svartfellingar. Hægt verður að fylgjast með gangi mála í leikjunum á vef UEFA.