Leikir í undankeppni EM 2017 framundan
Það eru leikir í undankeppni EM kvennalandsliða 2017 framundan á á næstu dögum leikur A landslið kvenna tvo leiki á Balkanskaganum. Fyrst er leikið gegn Makedóníu á fimmtudag og svo gegn Slóveníu mánudaginn 26. okt. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.
Aðeins tveimur leikjum er lokið í keppninni og því of snemmt að segja til um hvaða þjóðir taka forystu í riðlinum, en þó er ljóst að íslenska liðið ætlar sér að vera með fullt hús stiga eftir þessa leiki. Liðið er nú þegar búið að landa einum sigri, gegn Hvít-Rússum í síðasta mánuði.