Uppselt á leik Tyrklands og Íslands
Eins og kunnugt er eigast Tyrkir og Íslendingar við í lokaumferðinni í undankeppni EM karlalandsliða 2016. Leikurinn fer fram í Konya í Tyrklandi og er uppselt á leikinn - rúmlega 41.000 miðar seldir og má búast við mikilli stemmningu.
Þegar horft er á heildarfjölda íbúa í hvoru landi um sig er athyglisvert að á leiknum verða um 41.000 Tyrkir, eða um 0,05% af tyrknesku þjóðinni, sem telur um 80 milljónir, og að sama hlutfall íslensku þjóðarinnar verður á vellinum , eða um 150 manns sem er einmitt um 0,05% af íslensku þjóðinni.