U21 karla - Markalaust í Skotlandi
Íslenska U21-landsliðið gerði markalaust jafntefli við Skotland í Aberdeen en leikurinn þótti heldur rólegur. Frederik Schram, markmaður, átti góðan leik en Skotar sóttu heldur meira en íslensku strákarnir í leiknum. Ísland er með ellefu stig eftir fimm leiki og hefur enn ekki beðið ósigur.
Næsti leikur liðsins verður ekki fyrr en í lok mars, útileikur gegn Makedóníu. Skotar eru með fjögur stig að loknum þremur leikjum. Í millitíðinni fara fram fjórír leikir í riðlinum og getur staðan verið nokkuð mikið breytt að þeim loknum. Frakkar geta komist á toppinn með sigri í sínum tveimur leikjum í þeim mánuði.