Byrjunarlið U21 karla í Aberdeen
U21 landslið karla mætir Skotlandi í Aberdeen í dag, þriðjudag, og hefst leikurinn kl. 16:45 að íslenskum tíma. Ein breyting er gerð á byrjunarliði íslenska liðsins milli leikja. Árni Vilhjálmsson, sem skoraði sigurmarkið gegn Úkraínu í síðasta leik, kemur inn í byrjunarliðið í stað Ævars Inga Jóhannssonar, sem meiddist í leiknum við Úkraínu. Þá kemur Þorri Geir Rúnarsson á bekkinn.
Byrjunarlið Íslands
Markvörður
Fredrik August Albrecht Schram
Aðrir leikmenn
Adam Örn Arnarson
Oliver Sigurjónsson (fyrirliði)
Orri Sigurður Ómarsson
Hjörtur Hermannsson
Böðvar Böðvarsson
Höskuldur Gunnlaugsson
Sindri Björnsson
Elías Már Ómarsson
Aron Elís Þrándarson
Árni Vilhjálmsson