Eins marks tap U19 karla gegn Norður-Írum
U19 karla lék á dögunum tvo vináttuleiki við Norður-Írland, fyrri leikurinn vannst 2-0 með tvennu frá Alberti Guðmundssyni. Seinni leikurinn fór svo fram í Sandgerði á sunndag og þar unnu gestirnir sigur með eina marki leiksins. Þessir tveir leikir voru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni EM, en Ísland leikur sinn riðil á Möltu í næsta mánuði.