Æft á keppnisvellinum í Konya
A landslið karla er nú í Tyrklandi og mætir heimamönnum í lokaumferð undankeppni EM 2016. Sem kunnugt er hefur íslenska liðið þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, en Tyrkir keppa enn við Hollendinga um þriðja sætið, sem gefur sæti í umspili. íslenski hópurinn æfði í dag, mánudag, á keppnisvellinum í Konya, , og tóku allir leikmenn þátt í æfingunni.