U19 karla - Tveir leikir gegn Norður Írum
Íslenska U19 ára lið karla leikur tvo vináttuleiki við Norður Íra á komandi dögum. Á morgun, föstudag, leikur liðið á Samsung-vellinum í Garðabæ en leikurinn er klukkan 19:00.
Seinni leikurinn er á sunnudaginn og verður hann leikinn á K&G-vellinum í Sandgerði. Leikurinn hefst klukkan 12:00 á sunnudaginn.
Leikirnir er hluti af undirbúningi U19 liðsins sem leikur undankeppni EM í nóvember. Ísland er í riðli með Ísrael, Danmörku og Möltu í undankeppninni.