Íslenskir dómarar í Unglingadeild UEFA
Í vikunni fara fram leikir í Unglingadeild UEFA (UEFA Youth League) og verða tvö íslensk dómarateymi að störfum. Þorvaldur Árnason verður dómari á viðureign Arsenal FC og Olympiacos FC á þriðjudag og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður dómari á leik FC Midtjylland og FC Saburtalo á miðvikudag.
Í hvoru teymi um sig eru þrír íslenskir dómarar og eru teymin þannig skipuð:
UYL 29/09/2015, Borehamwood (England) :
Arsenal FC Youth (ENG) / Olympiacos FC Youth (GRE)
Dómari | Þorvaldur Árnason (ISL) |
Aðstoðardómari 1 | Jóhann Gunnar Guðmundsson (ISL) |
Aðstoðardómari 2 | Andri Vigfússon (ISL) |
4. dómari | Darren (Jon Herbert) England (ENG) |
UYL 30/09/2015, Herning (Danmörk) :
FC Midtjylland Youth (DEN) / FC Saburtalo Youth (GEO)
Dómari | Vilhjálmur Alvar Þórarinsson (ISL) |
Aðstoðardómari 1 | Gylfi Már Sigurðsson (ISL) |
Aðstoðardómari 2 | Birkir Sigurðarson (ISL) |
4. dómari | Morten Krogh (DEN) |
Í Unglingadeild UEFA (UEFA Youth League) leika U19 lið frá 64 félagsliðum í Evrópu.