U19 kvenna - Ísland tapaði gegn Sviss
Íslenska U19 ára landslið kvenna kemst ekki áfram á EM en liðið tapaði 2-0 gegn Sviss í lokaleik undankeppninnar í dag.
Fyrra mark Sviss kom í fyrri hálfleik en það seinna undir lok leiksins. Ísland þurfti að vinna leikinn til að eiga möguleika á að komast áfram en eftir óvænt tap gegn Grikklandi þá voru möguleikarnir alltaf litlir.
Ísland vann Georgíu í fyrsta leik en tapaði svo gegn Grikklandi og Sviss.