46.500 miðar seldir á Holland-Ísland
Samkvæmt upplýsingum frá hollenska knattspyrnusambandinu hafa, þegar þetta er skrifað að morgni miðvikudags, verið seldir 46.500 miðar á leik Hollands og Íslands í undankeppni EM 2016, sem fram fer á Amsterdam Arena á fimmtudag. Leikvangurinn tekur 52.960 manns í sæti og er búist við því að þeir miðar sem eru eftir seljist upp. Sem kunnugt er verða á milli 3 og 4 þúsund Íslendingar á leiknum.