Áfram Ísland með opinn sölubás á Laugardalsvelli á mánudag
Stuðningsmannahópurinn Áfram Ísland hefur lengi fylgt íslensku landsliðunum í knattspyrnu og selt varning í litum landsliðsins til að auka stemmningu. Mánudaginn 31. ágúst milli kl. 15:00 og 19:00 verður Áfram Ísland með opinn sölubás á Laugardalsvelli.
Tilkynning frá Áfram Ísland:
Kæri stuðningsmaður
ÁFRAM ÍSLAND stuðningsmennirnir verða með opinn sölubás (treflar, húfur, derhúfur, bolir, fánar, landsliðstreyjur o.fl) á Laugardalsvelli mánudaginn 31. ágúst frá 15-19 (margs konar tilboð í gangi).
Við viljum vera sýnileg á vellinum í Amsterdam og ef þú ert á leiðinni til Hollands er tilvalið að kíkja til okkar og dressa sig upp fyrir leikinn. Við verðum einnig með vörur til sölu á DAM torginu í Amsterdam fyrir leik en það er vissara að vera búinn að tryggja sér varning.
Kv, ÁFRAM ÍSLAND