Andri dæmir í Moldavíu
Andri Vigfússon verður í eldlínunni en hann mun dagana 27. – 29. ágúst dæma í undankeppni Futsal Cup, Evrópukeppni félagsliða í Futsal. Riðillinn sem fer fram í Moldavíu en þar mætast félagslið frá Armeníu, Belgíu auk Moldavíu.
Ólafsvíkingar eru einnig gestgjafar riðils í undankeppni Futsal Cup en þar hefst keppni 25. ágúst.