Vegleg dagskrá fyrir íslenska stuðningsmenn í Amsterdam
Stuðningssveitin Tólfan hefur skipulagt veglega dagskrá fyrir íslenska stuðningsmenn í tengslum við leik Hollands og Íslands í undankeppni EM karlalandsliða 2016, en liðin mætast í Amsterdam þann 3. september.
Í tilkynningu frá Tólfunni segir m.a. "Stærsta Íslendingaveisla sem haldin hefur verið á meginlandi Evrópu mun senn líta dagsins ljós og er eftirvænting ferðalanga svo sannarlega farin að gera vart við sig." Á leikdegi er ætlunin að Íslendingar taki yfir Dam-torg og máli Amsterdam í bláum lit.
Allar upplýsingar er að finna á Facebook-síðu Stuðningssveitarinnar Tólfunnar (Stuðningssveitin Tólfan).