Ráðstefna í tengslum við úrslitaleik Borgunarbikars kvenna
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samstarfi við KSÍ kynnir glæsilega bikarúrslitaráðstefnu sem haldin verður í Fífunni í tengslum við úrslitaleik Borgunarbikars kvenna. Dagskrá ráðstefnunnar er öll á föstudeginum 28. ágúst, en úrslitaleikur Borgunarbikarsins er síðan daginn eftir, laugardaginn 29. ágúst.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar eru Jonas Eidevall, fyrrum þjálfari Rosengård í Svíþjóð. Jonas er sænskur UEFA PRO þjálfari sem gerði Rosengård að sænskum meisturum árið 2013 og var valinn þjálfari ársins í Svíþjóð sama ár. Jonas mun fjalla um hvernig á búa til topplið í Evrópu, en hann hann hefur reynslu af því eftir veru sína hjá Rosengård, bæði í Evrópukeppni og deildarkeppni.
Athygli þjálfara er vakin á því að ráðstefnan veitir 4 endurmenntunarstig á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum.
Dagskrá - föstudagur 28. ágúst
19.00 Ávarp formanns KÞÍ og kvöldmatur.
19.30 Hvernig á að byggja upp topplið í Evrópu
Jonas Eidevall – sýnikennsla.
20.45 Hvernig á að byggja upp topplið í Evrópu
Jonas Eidevall – fyrirlestur.
21.45 Spáð í spilin fyrir bikarúrslitaleik kvenna
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari kvenna
22.00 Veitingar og spjall.
Verð á ráðstefnuna er 3.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ.
Verð fyrir þá sem eru ekki félagsmenn er 6.000 krónur.
Innifalið í verðinu er kvöldmatur, miði á bikarúrslitaleikinn, fræðsla og endurmenntunarstig.
Ráðstefnan er opin öllum. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarbill@ksi.is með upplýsingum um nafn og kennitölu.