Enskir gestadómarar á Íslandi
Á landinu eru staddir enskir dómarar sem munu dæma leiki í 1. deildinni á næstunni. Íslenskir dómarar fara reglulega og dæma leiki í erlendum deildum og fáum við að sama skapi góða gesti sem dæma hér á Íslandi.
Dómararnir munu dæma neðangreinda leiki í 1. deild karla:
23/7 Grindavík - Haukar Dómarinn er: Ross Joyce. Með honum í för er Ian Hussin og verður hann varadómari leiksins.
24/7 Víkingur Ó - Grótta Dómarinn er: Ian Hussin. Með honum í för er Ross Joyce og verður hann varadómari leiksins.