757 áhorfendur mættu á úrslitaleikinn
Um liðna helgi lauk úrslitakeppni EM U17 kvenna, en eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um fór keppnin fram hér á landi. Framkvæmd mótsins tókst í alla staði vel og er óhætt að segja að fjöldi áhorfenda á leikjum mótsins hafi verið framar vonum.
Hér að neðan gefur að líta aðsóknartölur. Meðaltal áhorfenda var 424 á leik, en heildarfjöldinn var 6.360. Á leiki Íslands mættu að meðaltali 612 áhorfendur, þar af voru áhorfendur yfir sjö hundruð á tvo leiki íslenska liðsins. Flestir áhorfendur mættu á viðureign Spánar og Frakklands í undanúrslitum, eða 807.
Aðsókn að leikjum í úrslitakeppni EM U17 kvenna 2015 |
||||
Riðill | Dagsetning | Leikur | Leikstaður | Aðsókn |
A | 22.6.2015 | England - Spánn | Grindavíkurvöllur | 271 |
A | 22.6.2015 | Ísland - Þýskaland | Grindavíkurvöllur | 707 |
B | 22.6.2015 | Írland - Frakkland | Kópavogsvöllur | 227 |
B | 22.6.2015 | Sviss - Noregur | Kópavogsvöllur | 227 |
A | 25.6.2015 | Ísland - England | Akranesvöllur | 714 |
A | 25.6.2015 | Þýskaland - Spánn | Akranesvöllur | 372 |
B | 25.6.2015 | Frakkland - Noregur | Laugardalsvöllur | 283 |
B | 25.6.2015 | Írland - Sviss | Laugardalsvöllur | 317 |
A | 28.6.2015 | Þýskaland - England | Fylkisvöllur | 243 |
A | 28.6.2015 | Ísland - Spánn | Kópavogsvöllur | 415 |
B | 28.6.2015 | Frakkland - Sviss | Fylkisvöllur | 236 |
B | 28.6.2015 | Noregur - Írland | Kópavogsvöllur | 205 |
Undanúrslit 1 | 1.7.2015 | Spánn - Frakkland | Valsvöllur | 807 |
Undanúrslit 2 | 1.7.2015 | Sviss - Þýskaland | Valsvöllur | 579 |
Úrslitaleikur | 4.7.2015 | Spánn - Sviss | Valsvöllur | 757 |
Alls | 6.360 |