U17 - Frakkar með fullt hús
Frakkar unnu sigur á Norðmönnum í úrslitakeppni EM U17 kvenna en leikið var á Laugardalsvelli í kvöld. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Frakka og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Frakkar hafa því tryggt sér sæti í undanúrslitum en Sviss og Noregur berjast um hitt undanúrslitasætið úr B-riðli.
Franska liðið er virkilega sterkt og hafði undirtökin í leiknum. Fyrra markið kom á 20. mínútu en það síðara á 36. mínútu. Franska liðið hélf forskotinu til leiksloka og hefur enn ekki fengið á sig mark í keppninni.
Á sunnudaginn mætast svo Frakkland og Sviss á Fylkisvelli kl. 13:00 og á sama tíma leika Noregur og Írland á Kópavogsvelli. Frakkar hafa 6 stig, Sviss er með 4 stig og Noregur er með 1 stig. Írar eru hinsvegar án stiga.