U17 kvenna - Frakkar lögðu Íra
Úrslitakeppni EM U17 kvenna hófst í dag með tveimur leikjum sem hófust báðir kl 13:00.
Írland - Frakkland
Frakkland vann 1-0 sigur á Írlandi í B-riðli en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Eina mark leiksins kom á 65.mínútu þegar Laurent skallaði knöttinn í mark Íra. Markmaður írska liðsins stökk upp í boltann en hafði ekki erindi sem erfiði og endaði knötturinn í markinu.
Franska liðið var sterkari aðilinn í leiknum og skapaði sér fleiri færi en írska liðið sem lék aftur á vellinum og beitti skyndisóknum.
Seinni leikur B-riðils fer fram klukkan 19:00 en þá mætast Noregur og Sviss
England - Spánn
England og Spánn gerðu jafntefli, 1 - 1, í fyrsta leik A-riðils en leikið var í Grindavlik. Eftir jafnan en markalausan fyrri hálfleik komust Englendingar yfir á 51. mínútu en það tók spænska liðið aðeins þrjár mínútur að jafna leikinn. Spænska liðið sótti heldur meira sem eftir lifði leiks en jafntefli í heildina sanngjörn niðurstaða þar sem tvo sterk lið mættust.
Seinni leikurinn í riðlinum er leikur Íslands gegn Þýskalandi sem hefst á Grindavíkurvelli kl. 19.00