Skemmtileg dagskrá fyrir leiki U17 kvenna!
Úrslitakeppni Evrópumóts U17 kvenna hefst á Íslandi á mánudaginn, 22. júní, en leikið er í Reykjavík, Kópavogi, Grindavík og Akranesi. Á mótinu leika efnilegustu knattspyrnukonur Evrópu og má því búast við spennandi og skemmtilegu móti.
Frítt er á alla leiki mótsins en Ísland er meðal liða og hvetjum við alla að koma á leiki mótsins.
Fyrir hvern leik verður boðið upp á knattþrautir, hoppukastala og grillaðar pylsur. Landsliðskonur munu einnig líta við á alla velli, heilsa upp á krakkana, dreifa plakötum af landsliðum Íslands og árita. Einnig verður happdrætti á hverjum leik þar sem miðar á landsleiki með A-landsliðum kvenna og karla verða meðal vinninga. Dregið verður út á meðan leikjum stendur en vinningshafar verða að vera á staðnum til að hljóta vinningana.
Það er því ríkt tilefni til að skella sér á leikina og skemmta sér ærlega. Boðið verður upp á pylsur, hoppukastala og knattþrautir fyrir leikina og svo er dregið úr happdrættismiðum undir lok leikja.
Sjáumst á vellinum!
Leikjadagskrá:
Leikdagur | Vikud | Leikvöllur | Tími | Leikur |
22. júní | Mán. | Grindavíkurvöllur | 13:00 | ENG-SPÁ |
22. júní | Mán. | Grindavíkurvöllur | 19:00 | ÍSL-ÞÝS |
22. júní | Mán. | Kópavogsvöllur | 13:00 | ÍRL-FRA |
22. júní | Mán. | Kópavogsvöllur | 19:00 | SVI-NOR |
25. júní | Fim. | Laugardalsvöllur | 13:00 | ÍRL-SVI |
25. júní | Fim. | Laugardalsvöllur | 19:00 | FRA-NOR |
25. júní | Fim. | Akranesvöllur | 13:00 | ÞÝS-SPÁ |
25. júní | Fim. | Akranesvöllur | 19:00 | ÍSL-ENG |
28. júní | Sun. | Kópavogsvöllur | 19:00 | SPÁ-ÍSL |
28. júní | Sun. | Kópavogsvöllur | 13:00 | NOR-ÍRL |
28. júní | Sun. | Fylkisvöllur | 19:00 | ÞÝS-ENG |
28. júní | Sun. | Fylkisvöllur | 13:00 | FRA-SVI |
1. júlí | Mið. | Valsvöllur | 13:00 | Undanúr. |
1. júlí | Mið. | Valsvöllur | 19:00 | Undanúr. |
4. júlí | Lau. | Valsvöllur | 14:00 | Úrslit |
Smelltu hérna til að skoða leiki mótsins.