• fim. 28. maí 2015
  • Dómaramál

"Þrefalda refsingin"

Red card

Á ársfundi Alþjóðanefndar Knattspyrnusambanda (IFAB) hinn 28. febrúar sl. fjallaði nefndin m.a. um hina svokölluðu "þreföldu refsingu" (skv. 12. gr. Knattspyrnulaganna), þ.e. brottrekstur, vítaspyrnu og leikbann, sem fylgir því að "hafa af mótherja augljóst marktækifæri".

Nefndin var sammála um að þessi refsing væri of hörð og að finna þyrfti betri lausn. Á fundinum var tillögu Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA), sem fól í sér nákvæma skilgreiningu á því hvenær dómaranum bæri eingöngu að sýna gula spjaldið í stað þess rauða fyrir slíkt leikbrot, hins vegar hafnað. Nefndin var engu að síður sammála um það í grundvallaratriðum að í vissum tilfellum mætti fella niður einn þátt "þreföldu refsingarinnar", þ.e. hið sjálfkrafa eins leiks bann fyrir rautt spjald sem leikmaðurinn fær skv. núgildandi ákvæðum agareglugerðar Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA). 

Í framhaldinu var aga- og laganefndum FIFA síðan falið  að kanna hvort gerlegt væri að fella niður hið sjálfkrafa eins leiks bann sem fylgir í kjölfar brottreksturs leikmanna sem "hafa af mótherja upplagt marktækifæri" þegar um er að ræða brot sem ekki teljast "heiftarleg" í skilningi knattspyrnulaganna. Niðurstöður aga- og laganefnda FIFA voru síðan lagðar fyrir fund framkvæmdastjórnar FIFA hinn 25. maí sl. Skemmst er hins vegar frá því að segja að framkvæmdastjórnin samþykkti þar, að tillögu forseta síns, að ekki yrðu að sinni gerðar neinar breytingar á agareglugerð FIFA hvað þetta varðar.