• mán. 27. apr. 2015
  • Agamál

Óúttekin leikbönn 2015

KSI-MERKI-PNG

Á hverju vori fær skrifstofa KSÍ ótalmargar fyrirspurnir um óúttekin leikbönn frá síðustu leiktíð. Ævinlega er félögum bent á að þeim hafi verið tilkynnt um leikbönn með tölvupósti og það sé á þeirra ábyrgð að gæta þess að leikmenn sem eigi eftir að taka út leikbönn geri svo eða sbr. starfsreglur Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ:

Agabrot framið á einu keppnistímabili hefur ekki ítrekunaráhrif á því næsta.  Ef leikmaður á eftir að taka út agaviðurlög þegar keppnistímabili lýkur, skal það gert í byrjun næsta keppnistímabils viðkomandi leikmanns.  Ofangreint nær aðeins til agaviðurlaga vegna brottreksturs en ekki vegna áminninga. Flytjist leikmaður á milli aldursflokka um áramót, skal hann taka út viðurlögin í nýjum aldursflokki.

Félög eru einnig beðin um að kynna sér breytingar á reglugerð KSÍ um Aga- og úrskurðarmál sem kynntar voru félögum með dreifibréfi, dagsett þann 20. mars síðastliðinn.  Sérstaklega eru félög beðin um að athuga að þrátt fyrir reglugerðarbreytingar varðandi aðskilin spjöld í deildarkeppni og bikarkeppni, þá taka leikmenn út leikbönn frá keppnistímabilinu 2014 óháð þeim breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða fyrir keppnistímabilið 2015 varðandi óúttekin leikbönn:

Óúttekið leikbann / óúttekin leikbönn frá fyrra ári skulu tekin út í fyrstu leikjum keppnistímbilsins óháð ofangreindum breytingum, þ.e. eins og verið hefur í fyrstu leikjum eins og þeir raðast af hálfu mótanefndar KSÍ, gildir einu hvort um leiki í meistarakeppni, Íslandsmóti eða bikarkeppni er að ræða.

Skrifstofa KSÍ hefur nú tekið saman lista til upplýsingar fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn vegna leikja í Íslandsmóti eða  bikarkeppni 2014. Á listanum eru leikmenn skráðir í þau félög sem þeir fengu leikbann með, þ.e. þau félög sem þeir léku með í lok keppnistímabils 2014.  Frá þeim tíma kunna þessir leikmenn að hafa skipt um félag og er því mjög mikilvægt að öll félög kynni sér listann bæði hvað varðar stöðu leikmanna frá 2014 og einnig stöðu leikmanna sem gengið hafa til liðs við félagið.  Listinn gefur ekki upplýsingar um óúttekin leikbönn í öðrum flokkum.

Leikbönn í deildarbikarkeppni KSÍ koma hér hvergi við sögu enda er almenna reglan sú að refsingar í deildarbikarkeppni KSÍ séu eingöngu teknar út í leikjum í deildarbikarkeppni KSÍ. 

Listinn er birtur með eftirfarandi fyrirvara:

Allir úrskurðir aganefndar 2014 um leikbönn voru tilkynntir félögunum með tölvupósti. Ef leikmaður hefur ekki tekið út leikbann sitt 2014 vegna brottvísunar flyst leikbannið í fyrsta eða fyrstu leiki í Íslandsmóti, bikarkeppni KSÍ eða Meistarakeppni KSÍ í viðkomandi flokki (nema leikmaðurinn fari upp um aldursflokk og flyst þá leikbannið með honum þangað). Þessi listi er því hvorki tilkynning um leikbann né leysir hann leikmann undan leikbanni. Listinn er aðeins til upplýsinga og áminning til félaganna um að skoða úrskurði aganefndar frá síðasta ári sem sendir voru sendir með tölvupósti og athuga hvort leikmenn eigi eftir að taka út leikbönn.

Ef aðildarfélög finna villu í listanum er þau vinsamlega beðin um að tilkynna Þorvaldi Ingimundarsyni á skrifstofu KSÍ um það. Ef félög eru í vafa um leikbönn er þeim einnig bent á að hafa samband við Þorvald, s. 510-2903.

Agabréf 2015

Dreifibréf til félaga - 20. mars 2015