A kvenna - Elín Metta inn í hópinn
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Hollandi í vináttulandsleik í Kórnum, laugardaginn 4. apríl kl. 14:00. Freyr hefur valið Elínu Mettu Jensen, úr Val, inn í hópinn og kemur hún í stað Hólmfríðar Magnúsdóttur sem er meidd.