U19 kvenna - Hópurinn sem leikur í Frakklandi
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í milliriðli EM, dagana 4. - 9. apríl. Riðillinn verður leikinn í Frakklandi og, auk heimastúlkna, verður leikið gegn Rússum og Rúmenum.
Efsta þjóðin í hverjum riðli tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Ísrael í sumar ásamt þeirri þjóð sem verður með bestan árangur í öðru sæti úr riðlunum sex.