Tvö landslið í eldlínunni í dag
Tvö íslensk landslið verða í eldlínunni í dag en þau leika bæði landsleiki ytra. Strákarnir í U17 leika gegn Wales í milliriðli EM en leikið er í Krasnodar. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma en íslenska liðið á ekki lengur möguleika á því að komast í úrslitakeppnina eftir töp gegn Austuríki og Rússlandi. Hægt er að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.
Þá munu strákarnir í U21 leika vináttulandsleik gegn Rúmenum í dag og hefst leikurinn kl. 17:30 að íslenskum tíma. Leikið verður í Targu Mures í Rúmeníu en þetta er þriðja skiptið sem þjóðirnar mætast í þessum aldursflokki.
Þessi leikur er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2017 en Ísland hefur leik þar gegn Makedóníu á heimavelli, 11. júní. Aðrar þjóðir í riðli Íslands eru: Frakkland, Norður Írland, Skotland og Úkraína.