Grískur dómari á leik Kasakstans og Íslands
UEFA hefur gefið út lista dómara fyrir næstu umferð í undankeppni EM karlalandsliða 2016. Dómarinn í leik Kasakstans og Íslands heitir Tasos Sidiropoulos og kemur frá Grikklandi.
Sidiropoulos hefur verið alþjóðlegur dómari síðan 2011 og komst í fyrsta flokk hjá UEFA í júní 2013. Frami hans hefur verið nokkur hraður, því hann hafði verið dómari efstu deild Grikklands í eitt og hálft ár þegar hann komst á lista UefEA yfir alþjóðlega dómara.