A kvenna - Hópurinn sem mætir Hollandi í vináttulandsleik
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Hollendingum í vináttulandsleik, laugardaginn 4. apríl næstkomandi. Leikið verður í Kórnum og hefst leikurinn kl. 14:00. Þetta verður í áttunda skiptið sem þjóðirnar eigast við hjá A landsliði kvenna en Ísland hefur fimm sinnum farið með sigur af hólmi í viðureignunum hingað til, einu sinni hefur orðið jafntefli og einu sinni hefur Holland haft betur. Þjóðirnar munu svo leika vináttulandsleik í Hollandi á næsta ári.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru leikjahæstu leikmenn hópsins en þær hafa báðar leikið 97 landsleiki.
Síðast léku þjóðirnar í úrslitakeppni EM í Svíþjóð árið 2013 og þá hafði Ísland betur, 1 – 0 með marki Dagnýjar Brynjarsdóttur. Þjóðirnar hafa einu sinni áður mæst í Kórnum, árið 2009 í vináttulandsleik. Honum lyktaði með jafntefli, 1 – 1.
Holland undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitakeppni HM í Kanada sem hefst 6. júní en þar leika þær í riðli með Kína, Nýja Sjálandi og heimastúlkum. Holland mun svo verða gestgjafi úrslitakeppni EM 2017 en dregið verður í riðla undankeppninnar þann 13. apríl næstkomandi og verður Ísland þar í efsta styrkleikaflokki. Holland situr nú í 11. sæti á styrkleikalista FIFA kvenna, fór upp um fjögur sæti á milli lista, en nýr listi verður birtur 27. mars.
Holland tók þátt á Kýpurmótinu sem fram fór á sama tíma og Ísland lék á Algarve mótinu. Þar hafnaði liðið í 8. sæti, gerðu jafntefli við Finnland og England en töpuðu gegn Ástralíu og Skotlandi. Hollenska liðið heldur héðan til Noregs þar sem þær leika vináttulandsleik 8. apríl.