U17 karla og kvenna leika í dag
Landslið karla og kvenna, skipuð leikmönnum 17 ára og yngri, verða í eldlínunni í dag. Stelpurnar leika seinni vináttulandsleik sinn gegn Írum ytra og hefst leikurinn kl. 11:00. Fyrri leiknum lauk með 2 - 1 sigri Íra.
Strákarnir leika í dag annan leik sinn í milliriðli EM en leikið er í Rússlandi. Það eru heimamenn sem eru andstæðingar dagsins og hefst leikurinn kl. 14:00. Fyrsta leikurinn var gegn Austurríki og biðu okkar menn þar lægri hlut, 0 - 1. Rússland og Wales gerðu markalaust jafntefli í sínum fyrsta leik. Efsta þjóð riðilsins kemst í úrslitakeppnina ásamt þeim sjö þjóðum sem verða með bestan árangur í öðru sæti úr riðlunum átta.
Upplýsingar um byrjunarliðin má finna á Facebook síðu KSÍ.