Algarve 2015 - Leikið gegn Bandaríkjunum í kvöld
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Bandaríkjunum í síðast leik liðsins í riðlakeppni Algarve mótsins. Leikurinn hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma en Bandaríkin hafa unnið báða sína leiki til þessa í riðlinum.
Ísland hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum, 0 - 2 fyrir Sviss og 0 - 1 fyrir Noregi og eftir leikinn í kvöld kemur í ljós hvaða mótherja Íslendingar fá á miðvikudag þegar leikið verður um sæti.
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Anna María Baldursdóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Miðverðir: Glódís Perla Viggósdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir
Tengiliðir: Dagný Brynjarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Hægri kantur: Guðný Björk Óðinsdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Harpa Þorsteinsdóttir
Fylgst verður með helstu atburðum leiksins á Facebook síðu KSÍ