Algarve 2015 - Guðrún Arnardóttir kölluð í hópinn
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur kallað Guðrúnu Arnardóttur, úr Breiðabliki, inn í landsliðshópinn sem tekur þátt um þessar mundir á Algarve mótinu. Guðrún kemur í stað Katrínar Ómarsdóttur sem ekki mun leika á mótinu. Katrín glímir enn við einkenni eftir höfuðhögg sem hún fékk í leik með liði sínu Liverpool og var ákveðið í samráði við lækna að hún mundi ekki leika með liðinu á þessu móti.
Guðrún kemur til móts við hópinn annað kvöld og verður því í leikmannahópnum þegar leikið verður gegn Bandaríkjunum á mánudag.