Algarve 2015 - Byrjunarlið Íslands gegn Sviss
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Sviss í dag kl. 15:00. Leikið verður í Lagos í Portúgal en þetta er fyrsti leikur Íslands á hinu geysisterka Algarve móti. Lára Kristín Pedersen byrjar í sínum fyrsta landsleik en stillt er upp ungu liði gegn hinu sterka liði Sviss
Byrjunarliðið:
Markvörður: Sandra Sigurðardóttir
Hægri bakvörður: Anna María Baldursdóttir
Vinstri bakvörður: Lára Kristín Pedersen
Miðverðir: Glódís Perla Viggósdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir
Varnartengiliðir: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði
Hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Elín Metta Jensen
Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ, og þar má einnig sjá viðtal við Ásmund Haraldsson, þar sem hann er einmitt spurður út í byrjunarliðið og taktík dagsins.