Íslenskir dómarar á U19 æfingamóti á La Manga
Dómararnir Bríet Bragadóttir, Jovana Cosic og Birna Bergstað Þórmundsdóttir verða að störfum á æfingamóti á vegum norska knattspyrnusambandsins dagana 4.-10. mars. Um er að ræða fjögurra liða mót U19 landsliða kvenna, sem fram fer á La Manga á Spáni. Auk Noregs taka Þýskaland, Bandaríkin og Danmörk þátt í þessu sterka móti.
Bríet mun starfa sem dómari á mótinu og þær Jovana og Birna sem aðstoðardómarar. Þetta er spennandi verkefni fyrir þær stöllur og góður undirbúningur fyrir verkefni ársins.