U19 kvenna - Leikurinn gegn Færeyjum færður í Fífuna
Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að seinni vináttulandsleikur U19 kvennalandsliðs Íslands og A landsliðs Færeyja fari fram í Fífunni í dag, sunnudaginn 22. febrúar, kl. 17:00. Leikurinn var fyrirhugaður í Akraneshöllinni kl. 19:00.