Stjarnan fékk Kvennabikarinn 2014
Það var Stjarrnan sem hlaut Kvennabikarinn fyrir árið 2014 en það eru verðlaun fyrir háttvísi í Pepsi-deild kvenna. Verðlaunin voru veitt á 69. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hótel Nordica Reykjavík.
Þá fékk Tindastóll viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu í 1. deild kvenna á síðasta tímabili.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, afhenti félögunum verðlaunin.