KR og ÍA fengu Dragostytturnar
KR og ÍA fengu Dragostytturnar á 69. ársþingi KSÍ sem haldið er Hótel Nordica Reykjavík. Þá fengu Fjarðabyggð, Höttur og KFG viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.
Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna. Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2., 3. og 4. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í efstu tveimur deildunum.