FH og ÍA fengu viðurkenningu fyrir dómaramál
Verðlaun voru veitt tveimur félögum fyrir góða frammistöðu í dómaramálum. Sem fyrr þurfti að uppfylla 10 skilyrði til þess að teljast fyrirmyndarfélag í þeim efnum. FH og ÍA stóðust skilyrðin og teljast því vera fyrirmyndarfélög í dómaramálum 2014. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, afhenti þessum félögum viðurkenningu á 69. ársþingi KSÍ.