Fjöldi þingfulltrúa á 69. ársþingi KSÍ
Laugardaginn 14. febrúar næstkomandi fer fram 69. ársþing KSÍ á Hilton Nordica Reykjavík. Alls hafa 146 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 133 fulltrúa frá 18 héraðssamböndum eða íþróttabandalögum.
Þingið hefst kl. 11:00 á laugardaginn en afhending gagna hefst kl. 10:00.