• fös. 06. feb. 2015
  • Ársþing

Rekstur KSÍ í samræmi við áætlun

Arsskyrsla 2014

Rekstur KSÍ á árinu 2014 er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun frá ársþingi.  Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2014 námu 1.067 milljónum króna samanborið við 972 milljónir króna árið á undan. Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af auknu framlagi frá FIFA og auknum sjónvarpstekjum.  Rekstrarkostnaður KSÍ var um 910 milljónir króna og lækkar frá fyrra ári um 18 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður ársins nam 157 milljónum króna, en áætlanir gerðu ráð fyrir 136 milljóna króna hagnaði. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var hagnaður af starfsemi KSÍ 161 milljónir króna.

Styrkir og framlög til aðildarfélaga á árinu námu 150 milljónum króna vegna sjónvarps- og markaðsréttinda, styrkja til barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira og er í samræmi við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir.  Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga er því hagnaður af rekstri KSÍ um 11 milljónir króna á árinu 2014.

Fjárhags- og eignastaða KSÍ er traust við áramót og lausafjárstaða góð. Handbært fé lækkar á milli ára og var í árslok 2014 um 211 milljónir króna. Eignir námu 639 milljónum króna. Eigið fé KSÍ var ríflega 211 milljónir króna í árslok.

Ársreikningur KSÍ

Ársskýrsla 2014

Hér að neðan má ársskýrslu KSÍ fyrir starfsárið 2014

Ársskýrsla stjórnar KSÍ

Smelltu hérna til að skoða í ISSUU veflesaranum

Fjárhagsáætlun 2015

Hér að neðan má sjá fjárhagsáætlun KSÍ fyrir starfsárið 2015

Fjárhagsáætlun KSÍ 2015