U21 karla - Ísland aftur í riðli með Frökkum
Dregið var í dag í undankeppni EM U21 karla en dregið var í höfuðstöðvum UEFA. Ísland dróst í riðil með Frakklandi, Úkraínu, Skotlandi, Makedóníu og Norður Írlandi. Ísland var í fjórða styrkleikaflokki og lenti með Frökkum úr efsta styrkleikaflokki, líkt og í síðustu undankeppni.
Samið hefur verið um leikdaga og hefja Íslendingar leik gegn Makedóníu á heimavelli, fimmtudaginn 11. júní.
Árangur Íslands gegn þessum þjóðum hjá U21 karla:
- Frakkland 7 leikir 1 jafntefli 6 töp
- Úkraína 3 leikir 1 sigur 2 töp
- Skotland 8 leikir 3 sigrar 1 jafntefli 4 töp
- Makedónía 2 leikir 1 sigur 1 jafntefli
- Norður Írland 4 leikir 3 sigrar 1 tap