U17 kvenna - Vináttulandsleikir gegn Írum í mars
Knattspyrnusambönd Íslands og Írlands hafa komist að samkomulagi um að U17 kvennalandslið þjóðanna leiki tvo vináttulandsleiki í Dublin, 21. og 23. mars. Íslenska liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitakeppni EM U17 kvenna sem haldin verður hér á landi og hefst 22. júní.
Þjóðirnar munu svo leika sama leik á næsta ári þegar U17 kvennalandslið þjóðanna mætast í tveimur vináttulandsleikjum, þá hér á landi.